Arkitektastofan Zeppelin arkitektar var stofnuð árið 1997 og fagnaði því nýverið tíu ára afmæli sínu. Stofuna stofnaði Orri Árnason, en hann var þá rétt við að ljúka námi í arkitektúr í Madríd á Spáni. Með tímanum hefur stofan vaxið og dafnað og nú starfa á milli 10 og 15 starfsmenn hjá Zeppelin arkitektum. Arkitektar, innanhússarkitekta, byggingarfæðingar o.fl.
Zeppelin arkitektar reka útibú á Selfossi.
Verkefni n eru af öllum stærðum og gerðum. Allt frá litlum viðbyggingum til stærri bygginga, s.s. skóla og skrifstofubygginga. Íbúðabyggingar af öllum toga hafa einnig verið viðfangsefni Zeppelin arkitekta, auk skipulagsverkefna.
Með auknum mannafla höfum við lagt síaukna áherslu á fullnaðarhönnun húsa, útboðsgerð og eftirlit með framkvæmdum.
Zeppelin arkitektar eru fljótir að færa byggingar af rissi yfir í þrívídd en þaðan eru allar frekari teikningar unnar. Með þessum hætti nýtist þrívíddin best við hönnun húsa og við fullyrðum að ávinningurinn sé áþreifanlegur. Við höfum því snúið hinu hefðbundna vinnuferli við, þar sem fyrst var teiknað í tvívídd og í lokin var unnin þrívídd.
Zeppelin arkitektar sækja sína andagift til landsins og náttúrunnar, frá hinni kraftmiklu Reykjavík þar sem fyrirtækið er staðsett og frá hinni alþjóðlegu reynslu sem býr á vinnustaðnum með sístækkandi hóp starfsfólks héðan og þaðan úr heiminum.
Zeppelin Arkitektar, Skeifunni 19, 108 Rvk. Sími: +(354) 553 3640
Skrifstofa Selfossi: Gagnheiði 42, 800 Selfoss. Sími: +(354) 480 5509.
zeppelin@zeppelin.is